Velkomin á vef Iðjubergs
Iðjuberg veitir fólki með einhverfa fötlun vinnu við sitt hæfi. Vinnan fellst aðallega í alhliða pökkun á blöðum, tímaritum, geisladiskum og alls konar límmerkingum o.m.fl.
Engin eiginleg bein framleiðsla fer fram á vinnustofunni, en á dagvist Iðjubergs fer fram gerð ýmissa listmuna. ( sjá um dagvist )
Iðjuberg er skipt í tvær sjálfstæðar deildir, dagvist og vinnustofu. Mötuneyti er á staðnum.
Markmið vinnustofunnar og hlutverk er að veita fólki með einhverfa fötlun vinnu við sitt hæfi og félagslega aðlögunarhæfni til að takast á við vinnuumhverfi. Einnig er markmið vinnustofunnar að borga laun og lífeyrisgreiðslur.
Endanlegt markmið er að einhverfu starfsmennirnir geti sótt vinnu útá almennan vinnumarkað.
|